Flottar legghlífar úr Filatura Zara garni, mjúkar og hlýjar
Einfaldar og flottar legghlífar
Ein stærð
Efni
A-Zara nr 1396 hvítur – 100g
B-Zara nr 1939 ferskjulitaður – 50g
C-Zara nr.1943 mosagrænn – 50g
Prjónar
Sokkarprjónar nr 3,5 og nr 4
Prjónafesta
23 lykkjur og 31 umf gera 10x10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4.
Fitjið upp 76 lykkjur á sokkaprjóna nr 3,5 með lit A. Prjónið 2 slétt og 2 brugðið 8 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og yfir í lit B. Í fyrstu umferð af lit B eru teknar tvær lykkjur saman alls 16 sinnum jafnt yfir umferðina = 60 lykkjur. Setjið merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið svo ca 5 cm. Skiptið yfir í lit C, prjónið ca 5 cm. Skiptið yfir í lit A og prj ca 5 cm. Þá eru komnir ca 23 cm. Skiptið þá yfir í lit B aftur og takið úr 1 lykkju sitthvoru megin við merkiþráðinn.
Endurtaka svo úrtökuna alls 6 sinnum með ca 1,5 cm millibili = 48 lykkjur. Passið samt að gera rönd með Lit B - 5 cm og skipta svo yfir í lit C og prjóna 5 cm ( líkt og áður)
Stykkið á þá á mælast cm 33 cm. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið eina umferð slétt. Prjónið svo 2 sléttar og 2 brugðnar, alls 8 cm. Fellið laust af og gangið frá endum.
Til baka
Prentvæn útgáfa